« Home | Der Alte Jamm, Jarlaskáldið er orðið löggilt gama... » | Ammæli Í dag á Jarlaskáldið ammæli. Það er 21 árs... » | Handbendi Baugsveldisins að nýju? Það er víst aðe... » | La Grande Buffe Jarlaskáldið liggur banaleguna. Þ... » | Aumt er það! Núnú, er svo illa komið fyrir Jarlas... » | Það hlaut að koma að því Loksins! » | Tuð Það er svo frábært við fimmtudaga að næst á e... » | Bissí Búið að vera allt of mikið að gera síðustu ... » | Ekki er kyn þótt keraldið leki... Skáldið var nor... » | Lilli og frægi kallinn Í dag gerðust góðir hlutir... » 

miðvikudagur, október 27, 2004 

Miðvikublogg ið fertugastaogsjötta

Uss, langt síðan maður birti miðvikublogg! Ekki nógu langt finnst eflaust sumum. Þeir ráða sem betur fer engu. Eða því miður. Anyway...

Spurning hvort maður hafi frá einhverju að segja. Í síðasta pistli þóttist Skáldið reyndar stefna á mikil ævintýri um næstu helgi. Og svei, ef það er ekki bara rétt! Jú, Skáldið hyggst slást í för með Flubbum og öðrum óþjóðalýð í ferð svona ca. í kringum Hofsjökul. Mun Magnús Andrésson standa fyrir ferð þessari og er Skáldinu víst ætlað það hlutverk að vera "kóari" fyrir Stefán nokkurn Twist á hans ágæta 22 ára fararskjóta. Hlutverk "kóara" er margslungið en sem betur fer er Skáldið komið í ágætis æfingu og ætti því að vera fullfært um að höndla spottann, loftmælinn og síðast en ekki síst diskaþeytingar.
Samkvæmt fregnum liggur leið vor um heldur hrjóstrugt landslag og allra veðra von svo Skáldið sá sæng sína útbreidda í gær, og sá um leið að hún myndi alls ekki duga í ferðina. Lagði það því leið sína í Útilíf ásamt fyrrnefndum Stebba og fjárfesti (með hjálp Björgólfs) í forláta svefnpoka. Að lærðra manna sögn er um gæðagrip að ræða sem ætti að halda Skáldinu á lífi í hinum verstu vetrarhörkum. Þó það nú væri fyrir hátt í 30.000 íslenskar nýkrónur!

Annað er víst ekki á döfinni á næstunni, jú, helgin á eftir er víst líka farin að taka á sig mynd, en fullsnemmt að fara að pæla í því. Eftir helgi hefst svo NBA-deildin blessuð og mun Skáldið þá birta spádóma sína í eftirtöldum flokkum (ásamt vonandi ýmsum öðrum):

MVP

NBA-lið ársins 1-3 (með tilliti til stöðu)

Nýliði ársins

Nýliðalið ársins 1-2 (án tillits til stöðu)

Varnarmaður ársins

Varnarlið ársins (með tilliti til stöðu)

Varamaður ársins

Þjálfari ársins

Framkvæmdastjóri ársins

Endurkoma ársins

Vonbrigði ársins

LVP (Least Valuable Player)

Playoff-lið, austan

Playoff-lið, vestan

Sigurvegari austurdeildar

Sigurvegari vesturdeildar

NBA-meistarar

(Ókey Snorri, ánægður?)

Teljari

Powered by Blogger
and Blogger Templates