laugardagur, maí 27, 2006 

Kosningar



Ætli þetta megi annars?

þriðjudagur, maí 23, 2006 

110 Reykjavík




Þá er Jarlaskáldið bara flutt, hefur yfirgefið móður sína og Breiðholtið og hafið búskap í Árbænum. Þar hefur það ráðskonu sér til fulltingis og er þegar búið að halda reisugilli. Líkt og sjá má hér. Netsamband er annars af skornum skammti í Árbænum og því ekki von á mikilli bót og betrun í skrifum á þessa síðu á næstunni. Kannski lagast það einhvern daginn...

miðvikudagur, maí 17, 2006 

Hálfvitar

Jarlaskáldið var að horfa á fótboltaleik. Hann fór vel. Gaman væri að vita hvaða leik lýsendurnir á Sýn voru að horfa á. Þvílíkir #$%#&#$!!

 

Trading Places

Ekki mikið líf hér þessa dagana. Jarlaskáldið hefur hreinlega bara verið nógu upptekið í raunheimum og ekkert nennt að sinna þessari vitleysu. Kannski breytist það á næstunni, en best að lofa sem minnstu. Annars lítur út fyrir að Skáldið sé loks á leið úr Breiðholtinu. Jamm, að flytja í eitthvert bófahverfi, og það bara á næstu dögum, og á enn eftir að kaupa sjónvarp. Ekki búast við miklum skrifum hér fyrr en því er lokið...

En þangað til má skemmta sér yfir þessu:

miðvikudagur, maí 10, 2006 

Skyld´ða vera...




Jarlaskáldið fór út að hjóla í kvöld. Nokkuð hressandi. Fer svo í ómskoðun á fimmtudaginn. Það er samt ekki ólétt. Eða við skulum allavega vona það. Meira síðar...

Teljari

Powered by Blogger
and Blogger Templates