« Home | Sumarfrí - Part Deux » | Sumarfrí » | Af þýðingum » | Partí » | Fimm, Fimm, Fimmvörðuháls » | Mörkin, já Mörkin » | Svíagrýlan » | Við Valgerður » | Er komið sumar? » | Önnur tilraun » 

þriðjudagur, ágúst 15, 2006 

Sumarfrí búið

Déskotans. Sumarfríið er búið og Jarlaskáldið mætt aftur á kontorinn, og auðvitað rífur gula ógeðið sig þá fram og skín sem mest það má inn um gluggann. Honum er ekki fisjað saman þessum Murphy.

Annars hefur þetta gerst síðan síðast.

Sem og þetta.

Þá var Skáldið að punga út fyrir ferð til Barcelona í næsta mánuði og er því á hvínandi kúpunni. Það mun þó reyna að halda netaðgangnum opnum heima fyrir og jafnvel rita eitt og eitt orð hér á næstunni, enda bloggsumarfríið orðið bara passlegt. Svo er eitt og annað á döfinni, þó kaupið sé lágt...

af hverju súpa femínískar beljur sjálfsagt hveljur??

Þeim ofbýður sennilega framkoman.

what did you do???

Flottar myndir frá Bagglútsballinu! Einstaklega vel gert að þér að skella búbbíumyndunum þarna inn, við vorum greinilega aðalskvísurnar á "ballinu"....Ef þú ætlar einhvern tíman að ná fleiri svona myndum að þá mæli ég með að þú hættir í VÍN og gangir í BÚBBÍUFÉLAGIÐ! Þú getur rétt ímyndað þér hvað gengur þar á.

Já frábærar myndir! Og frábært kvöld, þið eruð bara skemmtilegur félagskapur! Væri held ég ekki úr vegi að kynna þessa tvo hópa, þ.e. VÍN og Búbbíurnar - þvílík sprengja það nú yrði!! =)

Húrra fyrir Baggalúti, Feðgum, Snúlla, VÍN og Búbbíum!

Skrifa ummæli

Teljari

Powered by Blogger
and Blogger Templates