« Home | ...hvað annað en kokkurinn? Yuoo ere-a zee Svedee... » | ...kötturinn vitnar á síðu sinni í dagbók lögreglu... » | ...ég sá að Mummi fer hlýjum orðum um könnunina mí... » | ...hún Solla á ammæli í dag. Solla er kærastan han... » | Bara svona að prófa þetta <!-- Begin Sparklit HTM... » | ...þetta kom ekkert mjög á óvart take the death... » | ..víst kominn tími á að upplýsa dygga lesendur (al... » | ...jæja, best að ég fari að blogga eitthvað, hef v... » | ...ansi yrði ég lélegur harðstjóri... As dictat... » | ..ég hef frá litlu að segja, hef setið sem límdur ... » 

föstudagur, maí 24, 2002 

...þá er loksins komið á hreint hvernig vinnan hjá mér verður í sumar. Gamli flokkurinnn minn var lagður niður, svo ég verð á Land Rover eins og í gamla daga, og munum við Oddi ráða þar ríkjum, en Einar veðurfræðingur er horfinn á braut. Verðum við í miklum kvennafansi, allt að sex stúlkur munu verða okkur til halds og trausts. Þrjár þeirra hafa ekki sést áður, en munu vera á besta aldri, rétt innan við tvítugt, og eins og alkunna er njóta nýbakaðir íslenskufræðingar á miðjum þrítugsaldri sem búa hjá mömmu sinni mikillar kvenhylli innan þess aldurshóps, svo hver veit...


...enn bætist í hóp lesenda þessarar síðu. Rímnaflytjandinn og félagshyggjumaðurinn Hjörtur Einarsson hefur greinilega verið að ráfa um netið og rekið nefið hér inn. Það er gott að hann telur okkur Odda ekki vera tvíbura, vonandi að sá leiði misskilningur sé þá úr sögunni. Hjörtur er góður gæi, enda íslenskufræðingur...

Teljari

Powered by Blogger
and Blogger Templates