« Home | ... jæja, þá er ég orðinn einn í kotinu, gömlu flú... » | Nú ætla ég að skrifa um bílinn minn. Það er Volksw... » | Mikið lifandi skelfingar ósköp er kalt! Sumardagur... » | Hér er víst ætlunin að rita niður það sem leitar á... » 

laugardagur, maí 04, 2002 

...ég sá á heimasíðu þeirra skötuhjúa Gunnars og Sólveigar að hr. Oddbergur Eiríksson hefur haft uppi gífuryrði um ágæti þessarar dagbókarsíðu minnar, og jafnvel líkt mér við daun þann er iðulega leggur af hans fótum. Ástæða þessa uppþots mun vera ummæli mín um ágæti minnar síðu fram yfir nýtilfundna síðu hans, og virðist sem Oddbergur hafi látið eggjanir Magnúsar frá Þverbrekku hlaupa svo illa með sig í gönur. Ég er nú þannig gerður að ég fyrirgef honum þetta upphlaup sem verður að að ætla að hafi orðið í bræðiskasti, og legg til að hr. Oddbergur eyði tíma sínum frekar í uppbyggilegri mál en að standa í hnútukasti við mig og hafa í frammi hnýfilyrði, því í slíkum málum er augljóst hver lætur að lokum í minni pokann...

Teljari

Powered by Blogger
and Blogger Templates