« Home | Ógn og skelfing » | Stórlega ýktar sögur » | Með drulluna upp á bak » | Vondu mennirnirÞað var aldeilis stuð í vinnunni í ... » | HeiðaAhh, hún Heidi. Fegurst meyja sunnan Alpafjal... » | Jarlaskáldið strengdi eitt áramótaheit.Að blogga e... » | Flón ársinsNú er úr vöndu að ráða. Og úr mörgum að... » | Myndablogg » | Gleðilegan FestivusJarlaskáldið óskar landsmönnum ... » | Myndablogg » 

laugardagur, janúar 21, 2006 

Gettu betur

Jarlaskáldið hefur heyrt nokkra Gettu betur þætti í ár, og leyfir sér að fullyrða tvennt:

Sigmar spyrill: Frábær spyrill, miklu betri en Logi, jafnast á við Davíð Þór og Stefán Jón.

Anna Kristín spurningahöfundur: Gjörsamlega hræðileg. Hefur ekkert skynbragð á hvað er létt og hvað er erfitt, allt of mikið af landselur-útselur spurningum í víxlspurningum, virðist ekki hafa látið nokkurn mann lesa yfir spurningarnar. Spurningarnar líka allt of erfiðar miðað við fyrstu umferð. Hver í andskotanum spyr um latnesk heiti í hraða? Ber merki um leti. Verður vonandi betri í sjónvarpinu.

Sjitt, að það séu tíu ár síðan maður var í þessu...

PS. Jarlaskáldið vinnur enn á DV. Og það var einstaklega gaman að vera kallaður öllum illum nöfnum í síðustu viku. Ekki síst þegar Hjálmar Árnason kallaði Skáldið morðingja. Það er hverjum manni heiður að vera úthúðað af Hjálmari. Þvílíki vindhaninn...

Teljari

Powered by Blogger
and Blogger Templates